top of page
GODAR%20LEIDIR_edited.jpg

2019 -

Unnið fyrir / Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi við Umhverfis- og auðlindaráðuneytið

Hlutverk / Ráðgjöf og strategíuhönnun
 

RÁÐGJÖF | STRATEGÍUHÖNNUN
GÓÐAR LEIÐIR
Hönnun í náttúru og innviðir ferðamannastaða

ÚRBANISTAN/Anna María Bogadóttir er ráðgjafi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúr í verkefninu Góðar leiðir sem byggir á víðtæku samtali fagfólks, stofnana, sveitarfélaga, og ferðaþjónustuaðila. Verkefnið felur í sér kortlagningu, stefnumótun og þróun hönnunarferla við uppbyggingu, innleiðingu og viðhald innviða fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu. Fegurð, virðing og öryggi er leiðarljós verkefnisins sem hefur að markmiði að vernda viðkvæma náttúru og greiða aðgengi að sterkri náttúrupplifun.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs leiðir verkefnið í samstarfi við Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Í verkefninu eru þræðir úr formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2019 fléttaðir saman við verkefni úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru- og menningarsögulegra minja.

bottom of page