INNVIÐIR
ÚRBANISTAN vinnur að gerð sýninga og rannsókna á innviðum
hins manngerða umhverfis auk þess að leiða greiningarvinnu og samtal í þróunar- og stefnumótunar-verkefnum þvert á stjórnsýslusvið, fræðasvið og fagsvið

SAMTAL
DESIGN IN NATURE
Getum við minnkað fótspor okkar í náttúrunni og aukið sveigjanleika með færanlegri hönnun?
Anna María Bogadóttir, arkitekt stýrði samtölum um hönnun í norrænni náttúru í sendiráðum Íslands í Helsinki, Osló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Sendiráðin héldu hvert um sig sérstakan viðburð í aðdraganda HönnunarMars, sem fer fram í Reykjavík 4. til 8. maí nk. Anna María fékk til liðs við sig hönnuði, arkitekta og hagsmunaaðila, einn frá Íslandi og einn fulltrúa frá viðeigandi landi, til þess að ræða hlutverk hönnunar í tengslum við sjálfbæra ferðamennsku á Norðurlöndunum. Samtölin eru hluti af verkefninu Hönnun í norrænni náttúru, sem Anna María leiðir fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, í samstarfi við norrænan stofnanir og sérfræðinga.
Samtölin komu út í fjögurra þátta hlaðvarpsseríu sem allir geta hlustað á, Dialogue on Design in Nature. Hlaðvörpin eru á ensku.
Er hægt að hanna samband okkar við náttúruna? Hvernig ýtir hönnun undir og styrkir tengsl okkar við náttúruna? Þetta eru meðal spurninga sem verkefnið Hönnun í norrænni náttúru varpar ljósi á. Verkefnið er hluti af formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og snýr að stærra framtaki sem fjallar um sjálfbæran ferðamennsku á Norðurlöndunum. Með völdum verkefnum er varpað ljósi á fjölbreyttar hönnunarlausnir sem ýta undir verndun náttúrunnar og hvetja til ábyrgðar í umgengni við náttúruna. Verkefnin voru valin með því að skoða söguna, staðbundnar hönnunarhefðir og reynt að sjá fyrir möguleika framtíðarinnar sem liggja í nýrri tækni, samstarfi og nýsköpun.
Hlaðvörpin voru tekin upp í bústöðum sendiherra Íslands á Norðurlöndunum í samstarfi við sendiráðin, Íslandsstofu og norræna samstarfsaðila verkefnisins.
2022